Air Iceland Connect/Icelandair | |
Rekstrarform | Flugfélag |
---|---|
Slagorð | Skemmtum okkur innanlands |
Stofnað | 1997 |
Staðsetning | Reykjavíkurflugvöllur |
Lykilpersónur | Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri |
Starfsemi | Áætlunarflug, fraktflug, leiguflug |
Starfsfólk | 250[1] |
Vefsíða | https://www.airicelandconnect.is/ |
Air Iceland Connect var íslenskt flugfélag, sem stofnað var í kjölfar samruna innanlandsflugs Flugleiða og Flugfélags Norðurlands. Upprunalega nafn félagsins var Flugfélag Íslands en því var breytt árið 2017. Fyrirtækið var rekstrareining innan FL Group en er í dag hluti af Icelandair Group. Árið 2021 var ákveðið að fella merki og vef félagsins undir Icelandair.[2]
Meirihluti flugferða eru á milli Reykjavíkur, Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar.
(Áfangastaðir árið 2020) Frá Reykjavík til:
Flug til Grímseyjar, Þórshafnar og Vopnarfjarðar var framkvæmt af flugfélaginu Norlandair