Alþjóðaviðskiptamiðstöðin International Trade Centre | |
---|---|
Skammstöfun | ITC |
Stofnun | 1964 |
Höfuðstöðvar | Genf, Sviss |
Framkvæmdastjóri | Pamela Coke-Hamilton |
Móðurfélag | Alþjóðaviðskiptastofnunin Sameinuðu þjóðirnar |
Vefsíða | www.intracen.org |
Alþjóðaviðskiptamiðstöðin (enska: International Trade Centre, skammstafað ITC) er alþjóðastofnun sem starfar í umboði Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í gegnum Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun (UNCTAD). Stofnuninni var komið á fót innan GATT árið 1964 (hét þá International Trade Information Centre) til að auðvelda útflutning frá þróunarlöndum. Stofnunin stendur að fjölda verkefna sem ganga út á að bæta upplýsingagjöf og auðvelda alþjóðaviðskipti.
Höfuðstöðvar Alþjóðaviðskiptamiðstöðvarinnar eru í Genf í Sviss.