Besti flokkurinn | |
---|---|
Formaður | Jón Gnarr |
Varaformaður | Heiða Kristín Helgadóttir |
Stofnár | 2009 |
Höfuðstöðvar | Laugavegur 40a |
Félagatal | 1193 (árið 2010)[1] |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Anarkískur súrrealismi, kaldhæðni, félagsleg jafnaðarstefna, „Gnarrsimi“ |
Einkennislitur | blár/bleikur |
Vefsíða | www.bestiflokkurinn.is |
Besti flokkurinn var íslenskur stjórnmálaflokkur sem bauð fram í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 2010. Formaður flokksins var Jón Gnarr og skipaði hann einnig 1. sæti á lista flokksins í Reykjavík.[2][3]
Flokkurinn starfaði yfir heilt kjörtímabil, fram til næstu sveitastjórnakosninga í maí 2014. Margir flokksmenn Besta flokksins stigu eftir það til liðs við Bjarta framtíð.
Á heimasíðu flokksins var stefna flokksins útlistuð. „Stefna Besta Flokksins er byggð á því besta úr öllum öðrum stefnum. Við byggjum mest á stefnum sem lagt hafa grunninn að velferðarsamfélögum Norðurlandanna og Norður Evrópu. Það hljómar mjög vel núna. Á sama tíma og bæði forsjárhyggja ríkisrekins áætlunarbúskapar og afskiptaleysi og markaðstrú nýfrjálshyggjunnar hafa beðið skipbrot á örfáum árum standa samfélög byggð á virku lýðræði sterkust...Í rauninni erum við samt ekki með neina stefnu en við þykjumst vera með hana.“[4]
Yfirlýst stefnumál flokksins voru:[4]
Framboðslisti Besta flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2010 var eftirfarandi. Athugið að efstu 6 menn náðu kjöri sem borgarfulltrúar:[5]
1. Jón Gnarr |
16. Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir |
Samkvæmt skoðannakönnun Fréttablaðsins sem gerð var 25. mars 2010 mældist Besti flokkurinn með 12,7% fylgi í Reykjavík og fengi samkvæmt því tvo borgarfulltrúa í Borgarstjórn Reykjavíkur.[6]
Jón Gnarr formaður flokksins hafði þetta að segja um úrslitin:
Mér finnst þetta mjög gleðilegt...Ég hafði samt alveg búist við þessu. Við stefnum að því að ná fjórum mönnum inn. En þegar svona langt er til kosninga er bara mjög ánægjulegt að nýr flokkur fái þetta mikið fylgi. Líka af því þetta er yfirlýst grínframboð. Ég held að grínframboð hafi aldrei fengið meira en eitt prósent[6]. |
Í könnun sem Capacent lét gera dagana 12.–29. apríl mældist Besti flokkurinn með 24% fylgi og fengi samkvæmt því 4 borgarfulltrúa í Borgarstjórn Reykjavíkur. Jón Gnarr formaður flokksins sagði þessar niðurstöður vera góða byrjun og að flokkurinn stefndi að hreinum meirihluta í Reykjavík.[7]
Þann 15. maí opnaði Besti flokkurinn kosningaskrifstofu sína að Aðalstræti 9. Sama dag sendi flokkurinn frá sér stuðningslag með myndbandi sem hlaut mikla athygli.[8] Þann 17. maí birti MMR skoðannakönnun sem gerð var fyrir Sjálfstæðisflokkinn og mældist Besti flokkurinn með mest fylgi allra framboða, 36%. 21. maí birti Stöð 2 könnun sína og Fréttablaðsins, sem sýndi að Besti flokkurinn naut um 44% fylgis. Úrslit kosninganna urðu að lokum þau að Besti flokkurinn fékk 6 menn kjörna sem leiddi til þess að Besti flokkurinn og Samfylkingin mynduðu meirihluta og Jón Gnarr varð borgarstjóri Reykjavíkur.