Bombus polaris er tegund af humlum,[3] ættuð frá norðurslóðum.[4] Tegundin B. hyperboreus rænir búum hennar (sníkjulífi).
Nýlegar gensrannsóknir (2015) benda til að hún skiftist í tvær tegundir og á N-Ameríski hluti stofnsins að halda nafninu B. polaris, en Evrasíski hlutinn fá nafnið Bombus pyrrhopygus.
Hún er gul með svarta rönd milli vængja, og yfirleitt með aðra á afturbol, en liturinn er mjög breytilegur.[5][6] Hún er mjög loðin miðað við aðrar humlur. Tungan í meðallagi löng.[7]