Brjóstagras | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Thalictrum alpinum
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Thalictrum alpinum |
Brjóstagras (fræðiheiti: Thalictrum alpinum) er fjölært blóm af sóleyjaætt sem vex í móum, hlíðum og grasbölum. Það ber blóm í gisnum klösum og blómhlífarblöðin eru ljós-fjólublá. Í hverju blómi eru 8 fræflar sem hanga út úr blóminu. Hver frjóhnappur er í fyrstu gulur en verða þeir svo brúnir. Brjóstagras myndar hnetur sem sitja á slútandi stilk. Blómið er í heild um 6 til 20 cm hátt.
Á Íslandi vex sveppurinn grasmúrgróungur (Pleospora herbarum) á dauðum vefjum ýmissa plöntutegunda,[1] meðal annars á brjóstagrasi.[2]