![]() | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Choristoneura pinus Freeman, 1953[1] |
Choristoneura pinus er fiðrildi af veffiðrildaætt (Tortricidae). Tegundinni var fyrst lýst af Thomas Nesbitt Freeman 1953. Það finnst í gráfuruskógum í Norður-Ameríku.
Vænghafið er 18–24 mm hjá körlum og 15–28 mm kerlum. Fullvaxin dýr eru á ferli frá júní til ágúst.
Lirfurnar éta fyrst frjóköngla eftir að þær koma úr dvala í maí (til fyrripart júní) og leggjast svo á nýsprottið barr. Tegundin sækir helst á gráfuru (Pinus banksiana), en getur einnig valdið skemmdum á öðrum furutegundum.[2]