Clapham

Clapham High Street.

Clapham er hverfi í suðvesturhluta London. Hverfið er að mestu innan borgarhlutans Lambeth, en hlutar þess (til dæmis græna svæðið Clapham Common) ná yfir í Wandsworth. Hverfið byggðist upphaflega upp við gamla rómverska veginn frá London til Chichester á 17. öld og þegar járnbrautin kom á 19. öld varð það úthverfi borgarinnar. Í hverfinu eru tvær London Overground-lestarstöðvar (East London Line) og þrjár London Underground-stöðvar (Northern line).

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.