Cowlesít er steind sem myndar kúlulaga hvirfingar.
Cowlesít myndar gráa eða hvíta, mjög litla blaðlaga, afar þunna kristala er enda í oddi. Lengd er innan við einn mm. Gler- og skelplötugljái.
Cowlesít finnst í ólivínbasalti, þá helst með levyni. Það er sjaldgæft á Íslandi og fáir fundarstaðir þekktir, finnast við Mjódalsá í Borgarfirði.