Eduard David Mortier Fraenkel (17. mars 1888 í Berlín í Þýskalandi – 5. febrúar 1970 í Oxford á Englandi) var þýsk-enskur fornfræðingur og Textafræðingur.
Eduard Fraenkel fæddist í Berlín þann 17. mars árið 1888. Foreldrar hans voru gyðingar. Faðir hans var vínsali en móðir hans var dóttir bókaútgefanda. Edurad sótti nám í Askanisches Gymnasium í Berlín frá 1897 til 1906. Þar lærði hann að lesa bæði latínu og grísku. Í háskóla nam hann lög í fyrstu en sneri sér skömmu seinna að fornfræði og nam hjá Ulrich von Wilamowitz-Moellendorff. Tveimur árum síðar flutti hann sig frá Berlín til Göttingen og dvaldi þar til ársins 1912 og nam undir leiðsögn Friedrichs Leo.
Árið 1933 missti Fraenkel stöðu sína vegna andsemískra laga í Þýskalandi og fluttist hann þá til Bretlands og tók við prófessorsstöðu í latínu við Corpus Christi College í Oxford árið 1934. Hann gegndi þeirri stöðu þar til hann settist í helgan stein árið 1951.
Fraenkel framdi sjálfsmorð í janúar árið 1970, 81 árs gamall, skömmu eftir andlát konu sinnar.