Frumkvöðlafræði

Frumkvöðlafræði er viðskiptafræðiáfangi kenndur í háskólum og framhaldsskólum víða um heim. Á Íslandi er hann oft kenndur undir heitinu „nýsköpunar- og frumkvöðlafræði“. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda sem felst í því að stofna, reka og loka fyrirtæki sem byggist á eigin viðskiptahugmynd. Að nemendur skilji aðferðir til að koma auga á viðskiptatækifæri. Farið er yfir grunnatriði sem hafa verður í huga til þess að koma vöru eða viðskiptahugmynd á framfæri. Lögð er áhersla á hópvinnu og mikilvægi jákvæðra samskipta, og að hver einstaklingur fái að njóta sín og finna hvernig hæfileikar hans nýtast best.

Markmið námsins er að nemendur vinna raunhæft verkefni, það er að stofna og reka fyrirtæki. Nemendur læra að vinna saman sem hópur og gera sér grein fyrir mismunandi hlutverkum innan fyrirtækja, til dæmis starfsmannastjóra, framkvæmdastjóra og markaðsstjóra. Auk þess komast þau að því hversu mikilvægt það er að skipuleggja tímann sinn vel. Nemendurnir öðlast færni í mannlegum samskiptum ásamt því að taka tillit til hvors annars.Þar að auki öðlast þau leikni í að koma sér á framfæri í formi markaðssetningar (kynningar og auglýsingar) og í því að gera viðskiptaáætlun og markaðsáætlun.

Félag kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt var stofnað á Íslandi árið 2010.[1] Á Íslandi hefur reglulega verið haldin Fyrirtækjasmiðja á vegum ungra frumkvöðla á Íslandi.[2] Fyrirtækin eru hluti af keppni milli framhaldsskóla Íslands um góðar viðskiptahugmyndir. Fyrirtækin selja síðan vörur sínar í verslunarmiðstöðinni Smáralind eina helgi í apríl.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Félag íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt“. blog.is. Sótt 16.5.2023.
  2. „Fyrirtækjasmiðjan“. Ungir frumkvöðlar á Íslandi - JA Iceland. Sótt 16.5.2023.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.