Græni bananakakkalakkinn | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Panchlora nivea Linnaeus, 1758 |
Græni bananakakkalakkinn (fræðiheiti: Panchlora nivea) er lítil kakkalakkategund.[1]
Græni bananakakkalakkinn fyrirfinnst á Kúbu og eyjum í Karíbahafi og meðfram Mexíkóflóa frá Flórída til Texas, en hefur þó sést allt að Charleston í Suður-Karólínu við vesturstrendur Atlantshafsins.
Tengundin heldur sig við utandyra og telst því ekki meðal þeirra kakkalakka sem eru meindýr. Fullvaxta dýrin halda sig í runnum, trjám og öðrum jurtum en gyðlurnar fyrirfinnast oft undir drumbum og meðal annars grots. Tegundin laðast að björtum ljósum og er næturdýr.
Kvendýrið verður fullvaxta allt að 24 mm langt en karldýrið styttra eða 12-15 mm langt. Tegundin er grænleit með gular línur upp eftir síðunum. Hún er búin vængjum og sterk á flugi og einnig góð í klifri. Gyðlurnar eru brúnar eða svartar og grafa sig í jörð.