Gullmura | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Potentilla crantzii Crantz & Fritsch[1] | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Potentilla verna |
Gullmura (fræðiheiti: Potentilla crantzii) er jurt af rósaætt. Blóm gullmuru líkjast sóleyjum en þau hafa rauðgulan blett neðst á krónublöðum og skerðingu í þeim á framan og tvöfaldan bikar. Blómin eru fimmdeild, og eru krónublöðin gul. Gullmura finnst hátt til fjalla og hefur fundist á Tröllaskaga í 1200 m hæð.[2]
Á Íslandi vex sveppurinn grasmúrgróungur (Pleospora herbarum) á dauðum vefjum ýmissa plöntutegunda,[3] meðal annars á gullmuru.[4]