Holtasóti | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Rakur holtasóti með baukum í Austurríki.
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Andreaea rupestris |
Holtasóti (fræðiheiti: Andreaea rupestris) er tegund mosa af sótmosaætt. Hann finnst meðal annars á Íslandi og er algengur á steinum, oft á opnum svæðum, um allt land.[1] Auðvelt er að greina holtasóta frá náskyldu tegundinni fjallasóta á því að blöð holtasóta eru án miðrifs en blöð fjallasóta hafa miðrif.[1][2]
Holtasóti myndar gró í baukum eins og aðrir baukmosar. Gró holtasóta eru tvenns konar, vanþroska gró sem eru brún og um 20 µm að stærð og stærri græn gró sem eru um 30 µm.[2]
Holtasóti þolir vel þurrk sem gerir honum kleift að vaxa á svæðum sem eru opin fyrir vindi. Hann þolir hins vegar illa samkeppni við aðrar tegundir, svo sem litunarskóf (Parmelia omphalodes), snepaskóf (Parmelia saxatilis) og hraungambra (Racomitrium lanuginosum).[1] Lappamerla vex gjarnan á holtasóta.[3]
Holtasóti getur verið með algengustu mosum í sumum vistgerðum, til dæmis í eyðihraunavist[4] og í hraungambravist.[5]