Hríspappír er pappír frá Austur-Asíu unninn úr mismunandi jurtum. Hríspappír er meðal annars unninn úr þessum jurtum:
þunnum þurrkuðum plöntuhlutum af jurtinnni Tetrapanax papyrifer. Blöð gerð úr þeirri jurt voru mikið notur seint á 19. öld í Kína til að styrkja gvass málverk sem seld voru til Vesturlanda.
pappír gerður úr pappírsmórberjatré Broussonetia papyrifera. Slíkur pappír var gerður í Kína til forna og notaður í Kína, Japan, Kóreu og Víetnam til að skrifa, mála og teikna á.
ýmis konar pappír má einnig gera úr stráum hrísgrjónaplöntu eða stráum annarra jurta eins og hamps og bambus.
ætan pappír má búa til með þurrkum blöðum með mismunandi áferð og þykkt sem unnin eru úr sterkjuhrísgrjóna. Slíkur pappír sem unninn úr ætu deigi, er notaður í matargerð svo sem í vorrúllur og soðkökur.