Hærupysja (fræðiheiti: Coleophora algidella[2]) er fiðrildi í pysjufiðrildaætt. Útbreiðsla hærupysju er í Evrópu og hefur einnig fundist í Kína. Hún finnst alls staðar á láglendi á Íslandi, þó helst sunnan til.[3]
Fiðrildin eru gul, með 11–13 mm. vænghaf.[4]
Lirfurnar nærast á fræjum vallhæru (Luzula multiflora) og ýmissa annarra grasa.