Iglesia del Pueblo Guanche er trúfélag sem var stofnað árið 2001 í borginni San Cristóbal de La Laguna (á Tenerífe í Kanaríeyjum), í þeim tilgangi að stuðla að heiðnu trú Guanche-fólksins.
Félagið var sett á laggirnar af hópi Kanaríeyjabúa sem helguðu sig gyðjunni Chaxiraxi. Það hefur haldið skírnir og giftingar samkvæmt því sem vitað er um trúna. Félagið er nútímaheiðin trúarbrögð, eins og Ásatrúarfélagið, og fulltrúi fyrir heiðnu trú innfæddra Kanaríeyjabúa.[1]