Japansrauðyllir | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Blómstrandi runni
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Sambucus sieboldiana Blumer ex Schwer |
Japansrauðyllir (fræðiheiti: Sambucus sieboldiana) er lauffellandi runni ættaður frá Austur-Asíu.[1]
Þetta er lauffellandi runni eða lítið tré sem verður að 4 m hár. Hann blómstrar hvítum blómum að vori.[2]
Fræðiheitið sieboldiana vísar til þýska lænisins og grasafræðingsins Philipp Franz von Siebold (1796-1866).[3]
Hann er bæði notaður sem skrautplanta og til matar.
Hægt er að elda blöð og brum, en þau geta verið eitruð. Blöðin er hægt að nota í te.
Tegundir af þessari ættkvísl eru eitraðar og þekkt er að berin valdi magavandamálum hjá sumum, en engar heimildir eru um það hjá S. sieboldiana; öll eiturefni myndu eyðileggjast við eldun, eða myndu hafa lítil eituráhrif.