Li Wenwen (kínverska: 李雯雯, Pinyin: Lǐ Wén-Wén; fædd 5. mars 2000) er kínversk lyftingakona, Ólympíumeistari, heimsmeistari og Asíumeistari sem keppir í +87 kg flokki kvenna.[1]
Árið 2019 keppti hún á heimsmeistaramóti IWF [2] í Fuzhou, vann silfurverðlaun og setti heimsmet unglinga í í +87 kg flokki. [3] Síðar árið 2019 keppti hún á Asíska meistaramótinu í lyftingum 2019 í +87 kg flokki. Í réttstöðulyftu setti hún heimsmet með 147 kg lyftu, og vann til gullverðlauna í öllum lyftum.
Hún keppti fyrir hönd Kína á Sumarólympíuleikunum í Tókýó í Japan árið 2020. Hún keppti í +87 kg flokki kvenna og vann til gullverðlauna með nýju Ólympíumeti 320 kg.[4]