Metasequoia er ein þriggja ættkvísla sem nefnast rauðviður, og er aðeins ein tegund lifandi í ættkvíslinni, en þrjár tegundir þekktar frá stengerfingum. Núlifandi tegundin (Metasequoia glyptostroboides) er hraðvaxið tré ættað frá Lichuan, Hubei í Kína. Þrátt fyrir að vera minnsta tegundin í undirættinni verður hún að minnsta kosti 50 metra há. Síðan hún var uppgötvuð 1944, hefur hún verið vinsælt garðtré.
Metasequoia þekkjast frá mörgum stöðum á norðurhveli; meira en 20 steingerfðar tegundir hafa verið nefndar (sumar voru jafnvel greindar sem Sequoia), en eru nú taldar vera aðeins þrjár, M. foxii, M. milleri, og M. occidentalis.[1]
Ættkvíslin þekkist frá jarðlögum frá síð-Krítartíma til Míósen, en engir steingerfingar hafa fundist frá síðari tímum. Fyrir uppgötvunina var ættkvíslin talin hafa orðið útdauð um Míósen; þegar hún fannsr var hún kölluð "lifandi steingervingur".
Proceedings of the Second International Symposium on Metasequoia and Associated Plants, August 6–10, 2006, Metasequoia: Back from the Brink? An Update. Edited by Hong Yang and Leo J. Hickey. Bulletin of the Peabody Museum of Natural History, Volume 48, Issue 2 31 October 2007, pp. 179–426. [1]
The Reports of the Third International Metasequoia Symposium, August 3 to 8, 2010, Osaka, Japan [2]