Pinus arizonica er meðalstór fura sem vex í norður Mexíkó, suðaustur Arizona, suðvestur New Mexico, og vestur Texas í Bandaríkjunum. Hún verður 25 til 35 m há, með að 1,2 m stofnþvermál. Barrnálarnar eru í búnti 3, 4 eða 5, og eru fimm nálar í búnti algengastar. Þessi breytileyki gæti bent til blöndunar við hina náskyldu gulfuru (Pinus ponderosa). Könglarnir eru stakir, í pörum, eða 3 í hvirfingu, 5 til 11 sm langir.
Pinus arizonica var lengi almennt talin afbrigði af gulfuru, en hefur að minnsta kosti síðan 1997 verið viðurkennd sem sjálfstæð tegund af flestum.[1]
Þremur afbrigðum hefur verið lýst;
Pinus arizonica var. arizonica, nálarnar 3 til 4 saman, sjaldan fimm í búnti, 10 til 20 sm langar,[2] vex aðallega í Sierra Madre Occidental frá Arizona og New Mexico suður um Chihuahua til Durango og Zacatecas, vestur til Sonora og Sinaloa, og austur um Coahuila til Nuevo León.[3]
Pinus arizonica var. stormiae, nálarnar 3 til 4 saman, sjaldan fimm í búnti, 14 til 25 sm langar, vex í Sierra Madre Oriental frá Coahuila og Nuevo León suður til suðvestur Tamaulipas (í Miquihuana) og hlutar af San Luis Potosí.[4]
Pinus arizonica var. cooperi, nálarnar 5 saman, sjaldan fjórar eða þrjár, 6 til 10 sm langar, vex í Sierra Madre Occidental í Chihuahua og Durango. Þessu afbrigði var upphaflega lýst sem sjálfstæðri tegund, en sett undir Pinus arizonica af Farjon 1997. Þessi breyting hefur hefur ekki verið vinsæl hjá (aðallega) mexíkóskum grasafræðingum. Hún hefur einnig verið endurflokkuð sem undirtegund af Silba 2009 á grundvelli þess að hún er frábrugðnari en var. stormiae, en sú flokkun hefur enn færri formælendur.[5] Sumir höfundar telja þetta afbrigði skyldara Pinus hartwegii.[heimild vantar]