Pinus latteri | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus latteri Mason[2] | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Pinus tonkinensis A. Chev. |
Pinus latteri er furutegund ættuð frá Meginlandi suðaustur Asíu. Hún vex í fjöllum suðaustur Búrma, norður Taílands, Laos, Kambódíu, Víetnam og á kínversku eynni Hainan.
Hún vex yfirleitt til fjalla, milli 4.00–1.000 m, en finnst stundum niður að 100 m og upp til 1.200 m.
Pinus latteri er meðalstórt til stórt tré, að 25–45 m hátt og bol að 1.5 m í þvermál. Börkurinn er gulrauður, þykkur og með djúpum sprungum neðst á stofni, og þunnur og flagnandi ofar. Barrnálarnar eru í pörum, 15–27 sm langar og um 1,5 mm þykkar, græn til gulgræn. Könglarnir eru mjókeilulaga, 6–14 sm langir og 4 sm breiðir neðst óopnaðir, grænir í fyrstu, við þroska gljáandi rauðbrúnir. Þegar þeir opnast verða þeir 6–8 sm breiðer, oft nokkru eftir þroska eða eftir hitun í skógareldum, til að losa fræin. Fræin eru 7–8 mm löng, með 20–25 mm væng, og er dreift með vindi.[3]
Pinus latteri, er náskyld Pinus merkusii, sem vex sunnar í suðaustur Asíu, í Súmötru og Filippseyjum; sumir grasafræðingar telja þær reyndar sömu tegundina (undir nafninu P. merkusii, sem var lýst fyrst), en hún er frábrugðin með styttri og mjórri barrnálum (15–20 sm löng og 1 mm breið), minni könglar með minni köngulskeljum, könglarnir opnast við þroska, og fræin helmingi léttari. [4]