Plone | |
---|---|
Upplýsingar | |
Uppruni | Birmingham, England |
Ár | 1994–2001; 2019- |
Stefnur | Sálarraftónlist, gáfumannadanstónlist, geimaldartónlist, indí-pop, dans-popp |
Útgáfufyrirtæki | Warp Matador Ghost Box |
Meðlimir | Mike 'Billy' Bainbridge Michael Johnston |
Fyrri meðlimir | Mark Cancellara |
Plone er rafhljómsveit frá Birmingham á Englandi.
Plone var stofnuð síðla árs 1994 þegar Mark Cancellara og Mike Johnston byrjuðu að kaupa gömul hljómborð og gítarpedala, æfðu sig og bjuggu til hljóðheima (e. soundscape) undir nafninu Rehab. Johnston átti heima með Billy Bainbridge (sem var í Supernal ásamt meðlimum rafhljómsveitarinnar sol dat) sem keypti sér hljómborð og gekk í hljómsveitina og breytti nafni hljómsveitarinnar í Plone.
Hljómsveitin byrjaði að leika á tónleikum til stuðnings hljómsveitum eins og Pram og Broadcast. Árið 1997 komu Wurlitzer Jukebox máli við hljómsveitina sem gaf út smáskífuna „Press a Key“. Í kjölfar þess skrifaði hljómsveitin undir samning við Warp og í september 1998 gaf hún út smáskífuna „Plock“. NME, Melody Maker og Dazed & Confused tilnefndu hana eina af bestu smáskífum ársins.
Rob Mitchell (sem skrifaði fyrir hönd hljómsveitarinnar undir samning við Warp) greindist með krabbamein árið 2001 og lést í september sama ár, sem olli því að önnur plata þeirra kom aldrei formlega út. Þó að hún hafi aldrei verið gefin út þá hefur henni verið dreift á netinu.
Bainbridge spilaði síðan á hljómborð með Broadcast (í 'Ha Ha Sound'-tónleikaferðinni), og er nú meðlimur Seeland með Tim Felton (nú einnig fyrrverandi Broadcast), og gaf út smáskífuna „Wander“ / „Pherox“ á Duophonic árið 2005. Johnston stofnaði Mike in Mono og er einnig 'Clive 2' í ZX Spectrum Orchestra og meðlimur Modified Toy Orchestra.
Mark Cancellara er nú aðstoðarmaður töframanns og plötusnúður.
Frá og með sumrinu 2009 birtist lagið Plaything með Plone í auglýsingu fyrir Reese's Peanut Butter Cups.
Í október 2019 var tilkynnt að Bainbridge og Johnston hefðu komið aftur saman sem Plone og að ný plata yrði gefin út á Ghost Box-útgáfunni árið 2020.[1] Þann 25. febrúar 2020 var nýja platan tilkynnt, nefnd Puzzlewood og var gefin út þann 17. apríl. Hún er unnin úr efni sem tekið hefur verið upp á ýmsum stöðum frá „annarri plötunni“, allt til dagsins í dag.