Simek (2012)
Rudolf Simek (f. 21. febrúar 1954 í Eisenstadt ) er austurrískur textafræðingur og miðaldafræðingur , sem hefur m.a. fengist við germönsk og norræn fræði , og trúarbragðasögu .
Rudolf Simek nam þýskar bókmenntir, heimspeki og kaþólska guðfræði í Háskólanum í Vínarborg , og varð síðan bókavörður og dósent þar. Hann hefur kennt við háskólana í Edinborg , Tromsø og Sydney .
Frá 1995 hefur hann verið prófessor í germönskum fræðum við Háskólann í Bonn .
Lexikon der germanischen Mythologie , Alfred Kröner, Stuttgart 1984. ISBN 3-520-36801-3 — 3. útgáfa, endursamin: Kröners Taschenausgabe, Band 368, 2006.
Hugtök og heiti í norrænni goðafræði , Heimskringla, Reykjavík 1993, 333 s. — Ingunn Ásdísardóttir þýddi, Heimir Pálsson ritstýrði. Íslensk þýðing á ofangreindu verki.
Lexikon der altnordischen Literatur , Kröner, Stuttgart 1987. ISBN 3-520-49001-3 — Meðhöfundur: Hermann Pálsson .
Altnordische Kosmographie. Studien und Quellen zu Weltbild und Weltbeschreibung in Norwegen und Island vom 12. bis zum 14. Jahrhundert , de Gruyter, Berlin/New York 1990. ISBN 3-11-012181-6 — (Reallexikon der germanischen Altertumskunde . Ergänzungsbände, Bd. 4).
Erde und Kosmos im Mittelalter . C. H. Beck, München 1992. ISBN 3-406-35863-2
Kleines Lexikon der tschechischen Familiennamen in Österreich , Pädagogischer Verlag, Wien 1995. ISBN 3-215-11649-9 — Meðhöfundur: Stanislav Mikulásek.
Die Wikinger , C. H. Beck, München 1998. ISBN 3-406-41881-3
Religion und Mythologie der Germanen , Theiss, Stuttgart 2003.
Götter und Kulte der Germanen , C. H. Beck, München 2004. ISBN 3-406-50835-9
Mittelerde - Tolkien und die germanische Mythologie , C. H. Beck, München 2005. ISBN 3-406-52837-6
Der Glaube der Germanen , Lahn-Verlag, Limburg und Kevelaer 2005. ISBN 3-7867-8495-7
Odinsmythen . Stuttgart, Reclam 2008.
Kleines Lexikon der mittelalterlichen Artusliteratur . Stuttgart, Reclam 2009.
Ritstjórn
Rudolf Simek er aðalritstjóri bókaflokksins Studia Medievalia Septentrionalia – (Rannsóknir í norrænum miðaldafræðum ) – sem gefinn er út í Vínarborg .
Hann var (ásamt öðrum) ritstjóri tveggja afmælisrita Hermanns Pálssonar , en þeir störfuðu um tíma saman í Edinborg.