Spænska karlalandsliðið í körfuknattleik er fulltrúi Spánar í körfuknattleik. Liðið gekk til liðs við FIBA árið 1934 og hefur síðan tekið þátt í 30 úrslitakeppnum Evrópumótsins (1935-2015), 10 úrslitakeppnum HM (1950-2010) og tíu ólympískum sumarleikum (1960-2008). Stærstu afrek liðsins til þessa eru sigur á HM 2006, silfurverðlaunin á ólympíuleikunum 1984 í Los Angeles og 2008 í Peking og gullið á EM 2009, 2011 og 2015. Að auki hefur það unnið sex silfur verðlaun (1935, 1973, 1983, 1999, 2003, 2007) og tvenn bronsverðlaun (1991, 2003) á EM. Spánn er í öðru sæti á heimslista FIBA eftir HM 2010.[1]