Sólarljóð – (nafnið er yfirleitt haft í fleirtölu: Sólarljóðin) – eru gamalt íslenskt helgikvæði sem líkist sumum Eddukvæðum að bragarhætti og myndmáli. Það hefur að geyma kristna lífsspeki og minnir um margt á Hávamál. Það er alls 82 (eða 83) erindi, er kveðið undir ljóðahætti, rétt eins og t.d. Hávamál og Hugsvinnsmál. Sólarljóð flokkast oftast undir leiðslukvæði. Höfundur þeirra er óþekktur.
Í kvæðinu birtist kristinn og heiðinn hugarheimur á sérstæðan hátt, og töldu margir að kvæðið væri ort á mörkum heiðni og kristni. Nú er talið að eigið hugarflug skáldsins og kynni af Eddukvæðum hafi haft þessi áhrif. Þó að skiptar skoðanir séu um aldur kvæðisins, hallast flestir að því að kvæðið sé ort á árunum 1200–1250. Sólarljóð eru varðveitt í 44 pappírshandritum, og eru þau elstu frá 17. öld. Í einu þeirra er vitnað til skinnhandrits sem skrifað var eftir.
Í Sólarljóðum birtist faðir syni sínum í draumi, og ávarpar hann frá öðrum heimi. Kvæðið getur því talist til leiðslubókmennta, sem voru vinsælar á miðöldum. Kvæðið birtir kaþólska heimsmynd og leiðsögn um refilstigu lífsins. Sá sem hafði tileinkað sér boðskap kvæðisins kunni bæði að lifa og deyja, og gat því hlotið eilífa sáluhjálp.
Nafnið Sólarljóð kemur fram í 81. erindi, og er sótt í vísur 39-45, sem allar byrja á orðunum, Sól eg sá ....
Sólarljóð eru með þekktustu kvæðum íslenskum, og þykja „eitt stórkostlegasta trúarljóð sem ort hefur verið á íslenska tungu“ (Njörður P. Njarðvík). Sólarljóð eru einnig auðskilin nútíma lesendum; t.d. er seinni hluti 82. erindis fluttur við flestar íslenskar jarðarfarir:
Í sumum handritum er bætt við 83. erindinu, sem er talið yngri viðauki og er sleppt í flestum útgáfum. Það hljóðar svo:
Sólarljóð eru í sumum handritum eignuð Sæmundi fróða, en það er úr lausu lofti gripið, og er höfundurinn óþekktur. Sú hugmynd kemur þó fram í þjóðsögum. Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar stendur: „Sæmundur andaðist 1133, en með hverjum atburðum höfum vér eigi heyrt; þó segja menn, að hann þrídagaður hafi úr líkrekkjunni risið og þá kveðið þá drápu, er hans Ljóða-Eddu er vön að fylgja og kallast Sólarljóð.“
Sólarljóð eru til í allmörgum útgáfum, oft sem viðauki með Eddukvæðum. Af útgáfum má einkum nefna:
Fyrirmynd greinarinnar var „Sólarljóð“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 28. ágúst 2008.