Trelleborg er víkingaborg sem liggur í nágrenni Slagelse á Sjálandi. Vísindamenn hafa dagsett borgina til ársins 980 og var borgin að öllum líkindum notuð sem hernaðarvirki. Borgin var sterklega víggirt og gat rúmað mikið af fólki.