Þyrniblásól | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Meconopsis horridula Hook. fil. & Thomson | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Papaver horridulum (Hook. fil. & Thomson) Christenh. & Byng |
Þyrniblásól (fræðiheiti: Meconopsis horridula[1]) er blásól ættuð frá Nepal, Bútan, Kína, N-Myanmar og NA-Indlandi .[2] Hún blómstrar stórum, yfirleitt bláleitum blómum uppúr hvirfingu aflangra til lensulaga þyrnóttra blaða. Í raun öll plantan þyrnótt. Hún vex í nokkur ár og deyr svo eftir blómgun (eins og tvíærar jurtir, "monocarpic").
Vafi leikur á hvort að hrein tegundin sé yfirleitt í ræktun, en hún er talin mjög erfið erlendis.[3] Á Íslandi hefur hún reynst harðger.[4]