Peter Foote – (Peter G. Foote, fullu nafni Peter Godfrey Foote) – (26. maí 1924 – 29. september 2009) var enskur textafræðingur og prófessor í norrænum fræðum við University College London. Hann var um langt skeið fremsti fræðimaður Englendinga á sviði norrænna fræða.
Peter Foote fæddist og ólst upp í Swanage í Dorset, næst yngstur fimm bræðra. Faðir hans var slátrari og tókst að koma yngstu sonum sínum til mennta. Peter hóf háskólanám 1942 við University College of the South-West í Exeter, en var kallaður í herinn 1943 og gegndi herþjónustu í Austurlöndum fjær til 1947. Hann tók þá aftur til við námið og lauk BA prófi í ensku og norrænum fræðum við University College London 1948. Fékk þá norskan styrk og var í Háskólanum í Osló 1948–1949 undir handarjaðri Anne Holtsmark. Tók síðan aftur upp þráðinn í University College London.
Árið 1950 varð hann aðstoðarkennari í forníslensku við skandinavísku deildina, sem þá var innan enskudeildarinnar. Frami hans var skjótur, hann var fyrst lektor, síðan dósent og varð loks prófessor í norrænum fræðum 1963, uns hann lét af störfum 1983. Hann varð forseti nýstofnaðrar norrænudeildar skólans 1963 og byggði hana upp af miklum dugnaði og framsýni, svo að hún varð fremst í sinni röð á Bretlandseyjum.
Peter Foote var einn af fremstu fræðimönnum á sínu sviði og liggja eftir hann fjölmargar bækur og greinar um íslenskar fornbókmenntir. Úrval þeirra birtist í tveimur afmælisritum, sjá hér neðar. Hann sá um tvær útgáfur Jóns sögu helga, 2003, fyrir Hið íslenska fornritafélag og Árnasafn í Kaupmannahöfn. Hann annaðist þýðingu Grágásar á ensku, í félagi við Andrew Dennis og Richard Perkins. Hann vann mikið með öðrum fræðimönnum, með því að semja inngangsritgerðir, þýða texta eða semja skrár. Þekktasta verk hans mun þó vera bókin The Viking Achievement (1970), sem hann samdi með fornleifafræðingnum David M. Wilson. Hann hafði afburðaþekkingu á evrópskum miðaldafræðum, og taldi slíkt nauðsynlegan bakgrunn við rannsóknir á íslenskum fornbókmenntum. Hann var læs á margar tungur, bæði nútímamál og hin klassísku fornmál. Hann lagði áherslu á skýra framsetningu og var sjálfur mjög ritfær maður.
Peter Foote starfaði mikið innan Víkingafélagsins í London (Viking Society for Northern Research) frá 1952, var ritari og tvisvar forseti félagsins 1974–1976 og 1990–1992, og ritstjóri tímaritsins, Saga-Book, 1952–1976.
Hann var heiðursfélagi Hins íslenska Bókmenntafélags og var þrisvar sæmdur Fálkaorðunni. Hann var heiðursdoktor við Háskóla Íslands (28. febrúar 1987), og við Uppsalaháskóla, og var félagsmaður í mörgum vísindafélögum.
Peter Foote átti nána samleið með Stofnun Árna Magnússonar og systurstofnun hennar í Kaupmannahöfn. Hann hafði frábær tök á íslensku, átti hér marga vini og var hér stundum kallaður Pétur Fótur.
Kona Peters Foote var Eleanor McCaig (d. 2006), hjúkrunarkona sem hann kynntist í herþjónustunni. Þau giftust 1951 og eignuðust þrjú börn, Alison, Judith og Davis.
Meðal fornritaþýðinga sem Peter Foote endurskoðaði og gaf út fyrir Everyman's Library, eru Heimskringla (1961), Laxdæla saga (1964) og Grettis saga (1965).
Einnig þýddi hann hið þekkta kynningarrit: Facts about Iceland á ensku, fyrst 1951.