Rípurhreppur var hreppur í miðri Skagafjarðarsýslu, kenndur við kirkjustaðinn Ríp í Hegranesi.[1]
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Rípurhreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.[2]
Síðasta hreppsnefnd Rípurhrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Lilja Ólafsdóttir, Pálmar Jóhannesson, Símon Traustason, Sævar Einarsson og Þórunn Jónsdóttir.[3]
Oddvitar [4]