Sjávarborgin (franska: Spirou et les hommes-bulles) eftir höfundinn og teiknarann Franquin í samvinnu við Jean Roba er sautjánda bókin í bókaflokknum um Sval og Val og inniheldur tvær sögur: Sjávarborgina sem er sjálfstætt framhald bókarinnar Svamlað í söltum sjó og Dularfulla líkneskið. Sögur þessar voru ritaðar árið 1958 en komu ekki út á bók fyrr en 1964. Árið 1983 var hún gefin út á íslensku.
Sjávarborgin hefst á að Jón Harkan, glæpamaður úr Svamlað í söltum sjó flýr úr fangelsi. Skömmu síðar berast fregnir af því að kafbáti Sveppagreifans hafi verið rænt. Félagarnir álykta að Jón Harkan sé enn á ný á höttunum eftir gullfarminum á hafsbotni.
Svalur, Valur og greifinn halda með annan kafbát til frönsku Rivíerunnar til að elta Jón Harkan. Þar kynnast þeir Herra Una (franska: Monsieur D'Oup), heldri manni sem telur fátt dýrmætara í lífinu en ró og næði. Ýmis spellvirki eru unnin til að stöðva leiðangur þeirra félaganna, en Svalur kemst þó á mikið dýpi í köfunarhylkinu, þar sem hann telur sig sjá kýr á beit og ljós frá dularfullum neðansjávarfarartækjum. Vinir hans kenna ofskynjunum vegna köfunarveiki um.
Jón Harkan finnst í bát í höfninni, nær dauða en lífi, með gullforðann innanborðs. Lögreglan telur þá að málið sé leyst og engin þörf á frekari leit. Herra Uni tekur í sama streng. Félagarnir láta sér ekki segjast og þrátt fyrir frekari skemmdarverk uppgötva þeir leyndarmálið: Herra Uni hefur ásamt félögum sínum komið upp neðansjávarborg fjarri skarkala heimsins og beitt öllum brögðum til að halda henni leyndri, þar á meðal sveit manna í litlum kafbátum. Svalur og Valur lofa að þegja yfir leyndarmálinu.
Dularfulla líkneskið (franska: Les petits format) er seinni saga bókarinnar og álíka mikil að vöxtum. Svalur og Valur eru staddir í Sveppaborg. Valur bregður sér í ljósmyndavöruverslun til að kaupa filmur, en hverfur sporlaust. Síðar finna Svalur og Gormdýrið örsmátt líkneski sem er nákvæm eftirmynd Vals.
Svalur telur að vinur sinn hafi verið minnkaður og berast böndin að skringilegum doktor sem státar af miklu safni smálíkneskja. Sveppagreifinn kemur til sögunnar og saman uppgötva þeir hvernig í málinu liggur. Eigandi ljósmyndavöruverslunarinnar hefur þróað nýja tegund ljósmyndunar sem framkallar þrívíðar eftirmyndir, en aukaverkun hennar er sú að sá ljósmyndaði missir minni og rænu. Eftir mikla leit finnst Valur ráfandi um götur nálægs bæjar og endurheimtir minnið með hjálp greifans.
Sjávarborgin var gefin út af Iðunni árið 1983 í íslenskri þýðingu Bjarna Fr. Karlssonar. Þetta var átjánda bókin í íslensku ritröðinni