Botnleðja | |
---|---|
Önnur nöfn | Silt |
Uppruni | Hafnarfjörður, Íslandi |
Ár | 1994–2005, 2011–2013, 2023 |
Stefnur | Rokk |
Útgáfufyrirtæki | Rymur, R&R músik, Error músík, Spik |
Samvinna | Pollapönk, Hafnarfjarðarmafían |
Meðlimir |
|
Fyrri meðlimir |
|
Vefsíða | Botnleðja á Facebook |
Botnleðja (einnig þekkt sem Silt) er íslensk rokkhljómsveit sem var stofnuð í Hafnarfirði árið 1994. Hún er skipuð þeim Heiðari Erni Kristjánssyni sem syngur og spilar á gítar, Ragnari Páli Steinssyni á bassa og Haraldi Frey Gíslasyni á trommum.
Árið 1995 tók Botnleðja þátt í Músíktilraunum og sigraði keppnina.[1] Sem hluti af verðlaununum fékk sveitin rúman sólahring í upptökuveri þar sem hún tók upp sína fyrstu plötu, Drullumall. Platan kom út sama ár.[2]
Í upphafi var hljómsveitin undir áhrifum grunge-sveita eins og Nirvana, Soundgarden, Alice In Chains, Melvins, Pearl Jam og Mudhoney. Hún tók upp hráan og pönkaðan stíl og söng á íslensku, sem var óvenjulegt fyrir sveitir af þessari gerð á þeim tíma. Sveitin var einnig þekkt fyrir að hafa gengið undir ýmsum nöfnum, þar á meðal Blend, Utopia, Dive og Rusl, áður en nafnið Botnleðja varð fyrir valinu.
Eftir útgáfu Drullumalls fór sveitin í tónleikaferðalag um Ísland og hélt áfram að þróa tónlist sína. Árið 1996 gaf sveitin út sína aðra plötu, Fólk er fífl, sem naut mikillar velgengni og er oft talin ein af betri plötum sveitarinnar.
Árið 1997 hélt sveitin til Bretlands þar sem hún hitaði upp fyrir Blur á tónleikaferðalagi þeirra. Á þessum tíma tók sveitin upp efni á ensku undir nafninu Silt. Þriðja platan, Magnyl, kom út árið 1998, og var fylgt eftir með tónleikaferðalagi um Bretlandseyjar.
Fjórða platan, Douglas Dakota, var tekin upp í Englandi og kom út árið 2000. Eftir útgáfu hennar hætti Kristinn Gunnar Blöndal í hljómsveitinni, en hann hafði spilað á hljómborð á Magnyl. Botnleðja hélt áfram í upprunalegri mynd.
Sveitin tók þátt í undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2003 með laginu Euro/Visa, en hafnaði í öðru sæti á eftir Birgittu Haukdal. Sama ár gaf sveitin út plötuna Icelandic National Park, sem átti einnig að koma út undir nafninu Silt. Platan innihélt enska útgáfu lagsins Euro/Visa undir nafninu Human Clicktrack.
Botnleðja tók sér hlé í kringum árið 2013 en kom aftur saman árið 2023 þegar sveitin hitaði upp fyrir hljómsveitina Pavement í Hörpu.
Kristinn Gunnar Blöndal var hljómborðsleikari hljómsveitarinnar á því tímabili sem hún gerði Magnyl. Gítarleikarinn Andri Freyr Viðarsson tók við af Kristni og tók þátt í mörgum hljómleikaferðum hljómsveitarinnar víða um heim og hérlendis. Hann spilaði ekki inn á plötu með Botnleðju. Heiðar og Haraldur eru líka hluti af Hafnarfjarðarmafíunni, Stuðningsveit Fimleikafélags Hafnarfjarðar og Pollapönk.
{{cite web}}
: Lagfæra þarf |url=
gildið (hjálp)