Botnleðja | |
---|---|
Uppruni | Hafnarfjörður, Íslandi |
Ár | 1994-2005, 2011 – 2013, 2023 |
Stefnur | Rokk |
Útgáfufyrirtæki | Rymur, R&R músik, Error músík, Spik |
Meðlimir | Heiðar Örn Kristjánsson Ragnar Páll Steinsson Haraldur Freyr Gíslasson |
Botnleðja er íslensk rokkhljómsveit sem var stofnuð af nokkrum piltum í Hafnarfirði snemma í byrjun 10. áratugsins. Hún er skipuð þeim Heiðari Erni Kristjánssyni sem syngur og spilar á gítar, Ragnari Páli Steinssyni á bassa og Haraldi Frey Gíslasyni á trommum. Hljómsveitin vann músíktilraunir árið 1995. Botnleðja fór í tónleikaferðalag um Bretland og hitaði upp fyrir ensku hljómsveitina Blur árið 1997[1]. Hljómsveitin tók þátt í undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2003 með lagið Eurovísa og hafnaði þar í öðru sæti, á eftir Birgittu Haukdal.
Botnleðja kom úr 10 ára dvala árið 2023 þegar sveitin hitaði upp fyrir hljómsveitina Pavement í Hörpu.
Kristinn Gunnar Blöndal var hljómborðsleikari hljómsveitarinnar á því tímabili sem hún gerði Magnyl. Gítarleikarinn Andri Freyr Viðarsson tók við af Kristni og tók þátt í mörgum hljómleikaferðum hljómsveitarinnar víða um heim og hérlendis. Hann spilaði ekki inn á plötu með Botnleðju. Heiðar og Haraldur eru líka hluti af Hafnarfjarðarmafíunni, Stuðningsveit Fimleikafélags Hafnarfjarðar og Pollapönk.