Herbert Bloch (18. ágúst 1911 – 6. september 2006 í Cambridge í Massachusetts) var þýskur fornfræðingur og textafræðingur og prófessor í fornfræði við Harvard-háskóla. Hann var heimskunnur sérfræðingur um gríska sagnaritun, latneskar áletranir og fornleifafræði, miðaldafræði og arfleifð klassískrar fornaldar.
Bloch var þýskættaður gyðingur. Hann nam fornaldarsögu, klassíska textafræði og fornleifafræði við Berlínarháskóla og háskólann í Róm. Þaðan hlaut hann doktorsgráðu á sviði Rómarsögu árið 1935. Hann flutti til Bandaríkjanna árið 1939 vegna ofsókna sem gyðingar sættu í Evrópu á þeim tíma. Bróðir hans varð eftir í Þýskalandi og lést í helförinni.
Bloch kenndi fornfræði við Harvard-háskóla frá 1941 til 1982. Hann var félagi við Institute for Advanced Study í Princeton í New Jersey (1953/4), stýrði bandarísku fornfræðiakademíunni í Róm (1957-59), var forseti American Philological Association (1968/9) og forseti Miðaldaakademíunnar (1990-93). Hann var félagi í American Academy of Arts and Sciences, American Philosophical Society, Pontificia Accademia Romana di Archeologia (heiðursfélagi frá 1990) og þýsku fornleifafræðistofnuninni.
Bloch lést 6. september 2006 í Cambridge í Massachusetts.