Knattspyrnufélag Vesturbæjar | |||
![]() | |||
Fullt nafn | Knattspyrnufélag Vesturbæjar | ||
Gælunafn/nöfn | Vesturbæjarstórveldið [1] | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | KV | ||
Stofnað | 2004 | ||
Leikvöllur | Gervigrasvöllur KR / KV-Park | ||
Stærð | 2.781[2] | ||
Deild | 3. deild | ||
2024 | 8. sætim | ||
|
Knattspyrnufélag Vesturbæjar (KV) var stofnað 17. september 2004. Stofnendur félagsinns eru 11 ungir drengir úr Knattspyrnufélagi Reykjavíkur (KR), vildu ekki hætta að leika fyrir félagið þegar þeir gengu uppúr 2. flokk félagsinns. Síðan þá hefur Knattspyrnufélag Vesturbæjar verið hugsað fyrir þá KR-inga sem vilja halda áfram fótbolta. KV spilar á gervigrasvelli KR við Frostaskjól, sem hefur hlotið nafnið KV-park af stuðningsmönnum félagsinns. Stuðningsmannasveit KV heitir Miðjan. KV er í dag ekki eingöngu fótboltalið, heldur hefur félagið stofnað kvennalið, handknattleikslið, körfuknattleikslið og borðtennislið.[3][4]
Í kvennafótbolta KV sigraði meistaraflokkur 3. deild íslandsmótsinns, árið 2007. Kvennaliðið hafði fyrrum landsliðsþjálfarann Þorberg Aðalsteinsson sér innan handar á sama tímabili.[5] Önnur lið KV hafa komist í 32 liða úrslit bikarkeppna á sínu sviði. Handknattleikslið KV datt út úr 32 liða úrslitum SS bikarkeppnarinnar gegn FH, árið 2006.[6] Í körfuboltanum mætti liðið B-liði Snæfells í 32 liða úrslitunum ári síðar, eða á árinu 2007.[7] Körfuliðið mætti svo nýstofnuðu liði Körfuknattleiksliði Ísafjarðar, í Reykjavík, en andstæðingarnir eru skipaðir uppöldum KFÍ leikmönnum. Körfulið KV náði jafntefli í fyrri hálfleik leiksinns, en annars hafði KFÍ-R yfirhöndina og vann leikinn 41-32.[8]
Fótboltalið KV hóf innreið sína í íslenska knattspyrnu sumarið 2005 þegar þeir mættu Hrunamönnum í VISA-bikar karla í knattspyrnu. KV vann leikinn 4-2 með tvennu frá Magnúsi Bernhard Gíslasyni, stöku marki frá Ómari Inga Ákasyni og Sverri Björgvinssyni. KV spilaði tveimur mönnum undir í leiknum eftir brottvísun Páls Kristjánssonar og Ómars Inga Ákassonar. Sigurður Pétur Magnússon, í liði Knattspyrnufélags Vesturbæjar skoraði sjálfsmark.[9] Liðið komst svo upp í 2 deild tveimur árum seinna, eða á árinu 2009.[10] Eftir það afrek styrkti liðið sig nokkuð með því að fá Halldór Svavar Sigurðsson frá Hömrunum, Ingvar Rafn Stefánsson frá Leikni, Jason Már Bergsteinsson frá Gróttu, Magnús Helgason frá Víking og Björn Ívar Björnsson frá KR, sem jafnframt hafði verið á láni til KV.[11]
Knattspyrnufélag Vesturbæjar spilar í svartri og hvítri peysu með svörtum buxum og sokkum, sem aðalbúning félagsinns. Varabúningur félagsins er bleik peysa við svartar buxur og svart-hvíta (röndótta) sokka.[12] Stjórn félagsins í dag skipa (í stafrófsröð): Björn Berg Gunnarsson, Guðmundur Óskar Pálsson, Gunnar Kristjánsson, Jón Bjarni Kristjánsson og Páll Kristjánsson, sem jafnframt er formaður.
KV-Park er heimavöllur KV. Völlurinn hefur verið heimavöllur félagsins frá því fyrsti leikur þess var leikinn árið 2005.
Aðstaða | Fjöldi |
Sæti / bekkir undir þaki | 1541 |
Sæti / bekkir án þaks | 0 |
Uppbyggð stæði með þaki | 0 |
Uppbyggð stæði án þaks | 1060 |
Önnur ósamþykkt aðstaða | 180 |
Áhorfendur alls | 2781 |
Spennusagna og metsölu rithöfundurinn Arnaldur Indriðasson heldur með liðinu og sonur hans, Örn Arnaldsson spilaði með félaginu. Hann mætir þó einstaka sinnum á æfingar til að halda sér við.[14]
Opinber heimasíða KV Geymt 2 desember 2021 í Wayback Machine