Adam Curtis staddur á San Francisco International Film Festival árið 2005
Adam Curtis (f. 1955) er breskur heimildarmyndagerðarmaður sem nú starfar hjá bresku sjónvarpsstöðinni BBC. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir heimildarmyndir sínar, sem taka skýra afstöðu til umfjöllunarefnisins og verða oft mjög umdeildar.
An Ocean Apart (1988): Myndin fjallar um það hvernig Bandaríkjamenn urðu þáttakendur í fyrri heimsstyrjöld.
Pandora’s Box (1992): Þessi þáttaröð fjallar um hversu varhugaverð tækniveldi og hugmyndafræði skynsemishyggju getur verið. Curtis vann til BAFTA-verðlaunanna fyrir vikið.
The Living Dead (1995): Myndin fjallar um valin tilvik þar sem stjórnmálamenn og aðrir hafa breytt sögunni sér til framdráttar.
The Way of the Flesh (1997): Myndin segir frá Henrietta Lacks, konu sem dó úr krabbameini árið 1951 en leyfði lækni að taka frumusýni úr illkynja æxlinu og viðhalda þeim með frumuskiptingu. Til þess að hægt væri að rannsaka krabbamein.
The Power of Nightmares (2004): Myndin fjallar um stríðið gegn hryðjuverkum. Í henni er sett fram sú kenning að bæði stjórnmálamenn á Vesturlöndum og öfgasinnaðir múslimar í Arabaheiminum hagnist báðir á því að skapa goðsögn um hættulegan óvin.
The Trap – What happened to our Dream of Freedom (2007): Myndin fjallar það hvernig kenningar um mannlega hegðun, sem byggðar voru á leikjafræðilíkönumJohn Nashs frá Kaldastríðstímanum, hafa haft áhrif á það hvernig nútímamaðurinn lítur á hugtakið frelsi.