Ilmur Kristjánsdóttir (fædd 19. mars 1978) er íslensk leikkona, grínisti og stjórnmálamaður. Hún er þekkt fyrir að leika í Ófærð, Stelpunum, Ástríði og sex skaupum (2006, 2007, 2008, 2013, 2015 og 2018). Hún lék í öllum seríum Stelpnana frá 2005 til 2014 og skrifaði allar einnig.
Hún hefur líka leikið í landssöfnununum fyrir RÚV. Á allra vörum, 2012, Dagur rauða nefsins, 2017 og Stúlka ekki brúður, 2019.
Ár | Kvikmynd/Þáttur | Hlutverk | Athugasemdir og verðlaun |
---|---|---|---|
2004 | Dís | Blær | |
2005 | Stelpurnar | ||
2006 | Áramótaskaup 2006 | ||
2007 | Áramótaskaup 2007 | ||
2008 | Brúðguminn | Matthildur | |
2009 | Algjör Sveppi og leitin af Villa | Ilmur | |
2009 - 2013 | Ástríður | Ástríður | |
2011 | Algjör Sveppi og töfraskápurinn | ||
2013 | Ófeigur gengur aftur | Anna Sól | |
Áramótaskaup 2013 | |||
2015 | Fúsi | Sjöfn | |
Klukkur um jól | Kennari | ||
Áramótaskaup 2015 | Kona sem hatar skegg | ||
2015 - 2019 | Ófærð | Hinrika Kristjánsdóttir | |
2016 | Ævar vísindamaður | ||
2018 | Víti í Vestmanneyjum | Arna | |
Venjulegt fólk | Stella | ||
Áramótaskaup 2018 |
Ilmur er gift Magnúsi Sigurði Viðarssyni og eiga þau einn son, fæddan 1. janúar 2014. Ilmur á líka dóttur, fædda 2006 úr fyrra hjónabandi.
Árið 2014 var Ilmur fulltrúi Bjartrar framtíðar sem frambjóðandi í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Hún var kosin í sem formaður velferðarnefndar árið 2015.[2]